Super BB Concealer - Erborian
Fullkominn hyljari sem flokkast líka sem virk húðvara. Þannig á sama tíma og hún hylur er hún að vinna á húðsvæðinu og eykur ljóma og frískleika. Hyljarinn er meðal- til fullþekjandi og er með SPF 25 en nauðsynlegt til að verja viðkvæma húð augnsvæðisins og endist í allt að 12 tíma. Formúlan er rjómakennd, rakagefandi og hylur á áhrifaríkan hátt. Hún dregur úr þrota og gefur náttúrulegt útlit. Áferðin er fíngerð og létt eins og serum og smýgur auðveldlega inn í húðina. Formúlan inniheldur 5% Níasínamíð (B3 vítamín) sem lýsir upp og jafnar húðlit sem er vísindalega rannsakað. Gingseng sem eykur teygjanleika og dregur úr hrukkum og fínum línum. ÁRANGUR: Strax eftir fyrstu notkun er húðin rakameiri og mýkri. Eftir aðeins mánaðar notkun hefur dregið verulega úr ójöfnum og dökkum baugum.
Þér gæti líkað við