Algengar spurningar

Sending og afhending

Hvað kostar sendingin?

Sendingarkostnaður fer eftir stærð og þyngd pakkans og þeirri sendingarleið sem þú velur, og bætist við í greiðsluferlinu. Við sendum um allt land með Dropp og Íslandspósti, og verðið fer eftir verðskrá þeirra. Ef þú verslar fyrir 15.000 kr. eða meira er sendingin frí.

Hvenær fæ ég pöntunina mína?

Við sendum pantanir innan 1-2 virkra daga frá því að greiðsla er staðfest. Afhending tekur svo yfirleitt 1-3 virka daga til viðbótar eftir sendingarleið. Á álagstímum getur afhending tekið aðeins lengri tíma.

Get ég sótt pöntunina í verslunina?

Já. Þú getur valið að sækja frítt í versluninni okkar á Hafnargötu 35 í Reykjanesbæ. Við sendum þér staðfestingu þegar pöntunin er tilbúin, oftast samdægurs eða næsta virka dag. Hafðu staðfestinguna meðferðis þegar þú sækir.

Vöruskil og endurgreiðsla

Get ég skilað vöru?

Já, skilafrestur við netkaup er 14 dagar frá því að þú færð vöruna. Varan þarf að vera í upprunalegu ástandi, óopnuð og ónotuð, og innsigli má ekki vera rofið. Kvittun eða skiptimiði þarf að fylgja.

Hvaða vörum er ekki hægt að skila?

Af hreinlætisástæðum tökum við ekki við skilum á varalitum, glossum, möskurum eða naglavörum þegar ekki er hægt að sanna að þær séu óopnaðar. Útsöluvörur, tilboðs-gjafasett og gjafakort er heldur ekki hægt að skila eða skipta.

Hvernig skila ég vöru sem ég pantaði á netinu?

Þú getur skilað vöru í versluninni okkar á Hafnargötu 35. Ef þú pantaðir á netinu og kemst ekki í verslunina, hafðu samband við okkur á viney@viney.is og við leiðbeinum þér í gegnum skilaferlið. Kaupandi greiðir sendingarkostnað við skil. Við endurgreiðum kaupverðið innan 14 daga frá því að við fáum vöruna.

Hvað ef varan er gölluð eða ég fékk ranga vöru?

Hafðu samband við okkur strax á viney@viney.is eða í síma 618-4034 og við leysum úr því eins fljótt og við getum.

Greiðsla

Hvaða greiðsluleiðir bjóðið þið upp á?

Þú getur greitt með kreditkorti, debetkorti, reiðufé í versluninni eða með millifærslu. Kortagreiðslur fara í gegnum örugga greiðslusíðu Verifone. Ef þú greiðir með millifærslu þarf greiðslan að berast innan 3 klukkustunda frá kaupum.

Verslunin og þjónusta

Hvar er verslunin og hver er opnunartíminn?

Verslunin okkar er á Hafnargötu 35 í Reykjanesbæ. Opnunartími er mánudaga til föstudaga klukkan 11-18 og laugardaga klukkan 12-16. Þú getur líka alltaf náð í okkur á viney@viney.is eða í síma 618-4034.

Hvernig næ ég í ykkur?

Sendu okkur línu á viney@viney.is eða hringdu í síma 618-4034. Við svörum eins fljótt og við getum.