Sendingarskilmálar
Hvenær pöntunin fer af stað. Pantanir sem berast fyrir kl. 15 á virkum degi fara af stað samdægurs, annars næsta virka dag. Sendingarkostnaður fer eftir sendingarleið og birtist í greiðsluferlinu áður en þú greiðir.
Frí sending ef pantað er fyrir 15.000 kr. eða meira.
Sótt í verslun (frítt). Hafnargata 35, Keflavík. Yfirleitt tilbúið samdægurs, annars næsta dag. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin er tilbúin; hafðu staðfestinguna meðferðis.
Dropp, afhendingarstaðir og skápar. Yfirleitt komið á afhendingarstað á höfuðborgarsvæðinu næsta virka dag eftir að pöntunin fer af stað, og á 1 til 2 virkum dögum annars staðar á landinu.
Dropp, heimsending. 1 til 3 virkir dagar eftir að pöntunin fer af stað.
Pósturinn, póstbox. Yfirleitt 1 til 3 virkir dagar eftir að pöntunin fer af stað. Pósturinn lætur þig vita þegar pakkinn er tilbúinn.
Álagstímar, til dæmis í desember, geta lengt afhendingartímann.
Ef pakki týnist eða skemmist á leiðinni til þín berum við ábyrgðina þar til þú hefur tekið við honum. Hafðu samband og við sendum nýja vöru eða endurgreiðum.