Privacy policy
Síðast uppfært 21. ágúst 2026.
Viney er lítil verslun og við förum með upplýsingar um þig eftir því. Hér segir hverju við söfnum, af hverju, hverjir sjá það og hvað þú mátt biðja um.
1. Hver við erum
Viney ehf., Hafnargötu 35, 230 Reykjanesbæ, kt. 440725-0900.
Netfang viney@viney.is, sími 618 4034.
Um vinnsluna gilda lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
2. Hvað við söfnum og af hverju
Þegar þú verslar. Nafn, netfang, símanúmer, heimilisfang og upplýsingar um pöntunina. Við þurfum þetta til að afgreiða pöntunina, koma henni til þín og sinna skilum og ábyrgð. Kortanúmerið þitt fer aldrei um okkar hendur; kortagreiðslur fara í gegnum greiðslugátt Verifone.
Þegar þú skráir þig á póstlista eða í Vana. Fornafn, netfang og hvenær þú samþykktir. Í Vana bætist við afsláttarkóðinn þinn og listi yfir þær húðvörur sem þú hefur keypt. Þetta gerum við af því að þú baðst um það, og þú getur hætt hvenær sem er.
Þegar þú heimsækir viney.is. Venjulegar tæknilegar upplýsingar um heimsóknina, svo vefurinn virki og við sjáum hvað er skoðað.
Við biðjum ekki um kennitölu nema lög krefjist þess og við söfnum engum viðkvæmum persónuupplýsingum.
3. Hverjir sjá upplýsingarnar
Við hvorki seljum þær né gefum. Þeir sem koma að þeim fyrir okkar hönd eru:
- Shopify, sem rekur vefverslunina og viðskiptavinaskrána
- Verifone, sem tekur við kortagreiðslum
- sendingaraðilinn sem kemur pakkanum til þín
- bókarinn okkar, vegna reikninga
Sumir þessara aðila vinna upplýsingar utan EES. Þá byggist flutningurinn á stöðluðum samningsákvæðum Evrópusambandsins eða sambærilegri heimild.
4. Hversu lengi við geymum þær
Reikninga og pantanir geymum við eins lengi og bókhaldslög krefjast, og þeim getum við ekki eytt fyrr þótt þú biðjir um það. Póstlista og Vana geymum við á meðan þú ert skráð eða skráður; afskráir þú þig fellur kóðinn úr gildi og við eyðum vörulistanum þínum. Öðru eyðum við þegar við þurfum það ekki lengur.
5. Réttindi þín
Þú átt rétt á að sjá hvað við geymum um þig, láta leiðrétta það, láta eyða því að því marki sem bókhaldslög leyfa, fá afrit af því, andmæla vinnslu og draga samþykki til baka. Markaðspósti afþakkar þú með hlekknum neðst í hverjum pósti.
Sendu okkur línu á viney@viney.is og við afgreiðum beiðnina. Ef þú ert ósátt eða ósáttur viljum við gjarnan heyra það fyrst, en þú getur alltaf kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is). Kvartanir vegna markaðspósts fara til Fjarskiptastofu.
6. Vefkökur og breytingar
viney.is notar vefkökur svo vefurinn virki, muni körfuna þína og telji heimsóknir. Þú getur hafnað vefkökum eða eytt þeim í stillingum vafrans, en þá virkar vefurinn ekki að fullu.
Við getum uppfært þessa stefnu. Dagsetningin efst segir hvenær það var gert síðast.