Terms of service

Skilmálar Viney

Með því að leggja inn pöntun hjá Viney samþykkir kaupandi eftirfarandi skilmála. Ef eitthvað er óljóst, sendið fyrirspurn á viney@viney.is.

Viney áskilur rétt til þess að hætta við pantanir ef þörf er á, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða ef vara skyldi ekki vera til.

Viney er rekið af  Viney ehf.,

kt. 440725-0900.

VSK númer: 157801

Greiðsla: Kaupandi getur innt greiðslu af hendi með kreditkorti, debetkorti, reiðufé í verslun eða millifærslu. Kortafærslur fara í gegnum örugga greiðslusíðu Verifone.

Sé greiðsla gerð með millifærslu skal leggja inn á reikning hjá Viney innan 3 tíma frá kaupum. Hafi greiðsla ekki borist innan þess tíma fer vara / vörur aftur í sölu.

  • Reikningsnúmer: 0517-15-001068
  • Kennitala: 440725-0900

Afhending vöru:Við leggjum okkur fram við að afgreiða pantanir eins fljótt og hægt er. Sendingarkostnaður er mismunandi eftir stærð og þyngd pakkans ásamt sendingarleið, verðið bætist við í greiðsluferlinu. Við bjóðum upp á sendingu um allt land með Dropp og Íslandspósti. Sjá afhendingar upplýsingar frá Dropp og Íslandspósti fyrir neðan. (ATH við byrjum með Dropp og bætum við íslandspósti sem fyrst).

Hérna eru afhendinngarleiðirnar sem hægt er að velja á milli:

Viney verslun:

Sækja á Hafnargötu 35, 230 Reykjanesbæ, Viney Verslun - FRÍTT (0-1 virkir dagar)
Hafa staðfestingu meðferðis.
Færð staðfestingu Þegar tilbúið að sækja.
Hægt að sækja samdægurs eða næsta virka dag eftir greiðslu.


Dropp:

Afhendingarstaðir Dropps: verð fara eftir verðskrá dropp (1-2 virkir dagar)
Heimkeyrsla Dropps: verð fara eftir verðskrá dropp  (1-3 virkir dagar)
Álags tímar geta haft áhrif.


Við sendum allar pantanir innan 1-2 virka daga frá því að greiðsla hefur verið staðfest. Minnum þó á að sendingartími getur verið mismunandi eftir staðsetningu eða vegna öðrum óútreiknanlegum aðstæðum. 

Þegar pöntunum er dreift Dropp gilda þeirra afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar um afhendingu vörunnar. Viney ehf. ber ekki ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða í flutningi.

Vöruskil: Skilafrestur á netinu er 14 dagar frá móttöku vörunnar (netkaup – skv. lögum nr. 16/2016). Ekki er hægt að skipta eða skila vöru án kvittunar eða skiptimiða (ef endurgreiðsla á við er kvittun nauðsynleg).

Ef vöruskil eiga sér stað er nauðsynlegt að varan sé í upprunalegu standi, og ef varan er með innsigli, er ekki leyfilegt að skila ef búið er að rjúfa innsiglið. Einnig má ekki vera búið að opna, nota eða skemma vöruna. Ekki er hægt að skila vörum eins og varalitum, glossum, möskurum og naglavörum (sem er ekki innsiglað eða hægt að sanna að hafi ekki verið opnaðar) vegna hreinlætisreglna.

Einnig er ekki hægt að skila eða skipta útsöluvörum, tilboðs gjafasettum og gjafakortum.

Vöruskil fara fram í verslun okkar á Hafnargötu 35, 230 Reykjanesbæ. Ef varan var pöntuð með sendingu þá er hægt að skila með því að senda vöruna til baka á:

Viney ehf.

 Lyngholt 18,

 230 Reykjanesbær

Við endurgreiðum kaupverðið innan 14 daga frá móttöku skilavöru. Kaupandi ber ábyrgð á öllum sendingarkostnaði, ef skil eða skipti eiga sér stað. Ef þú óskar eftir skilum á vöru hafðu samband við okkur til að fá nánari upplýsingar um ferlið.

Gallaðar vörur og ábyrgð: Ef þú hefur fengið ranga vöru eða vöru með galla, hafðu samband og við munum aðstoða þig eins fljótt og hægt er. Við leysum málið samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003; sem er ný vara, viðgerð eða endurgreiðsla eftir því sem best á við að hverju sinni.

Uppruni Vara: Við tryggjum að allar vörur sem við seljum séu löglega framleiddar og koma frá virtum heildsölum hérlendis og erlendis, við styðjum ekki gráan markað eða ólöglegar vörur. Við tryggjum að öll snyrtivörumerkin sem við bjóðum upp á séu vottuð og uppfyllir íslensk lög varðandi öryggi og gæði.

Við erum alvarlega meðvituð um mikilvægi þess að veita viðskiptavinum okkar aðeins vörur sem uppfylla hæsta gæðastaðla, bæði varðandi öryggi og áreiðanleika. Ef þú hefur einhverjar spurningar um uppruna vöru eða vilt fá nánari upplýsingar um það, er þú velkomin(n) að hafa samband við okkur.

Vöruverð: Verð er það sem birtist á síðunni þegar pöntun er framkvæmd, öll verðin í verslun og vefverslun okkar eru í ISK og með virðisaukaskatti. Öll vöruverð eru birt með fyrirvara um prentvillur og áskilum við okkur rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp. Vinsamlega athugið að vöruverð getur breyst án fyrirvara.

Afsláttarkóðar og/eða tilboð gilda aldrei á öðrum tilboðum, útsöluvörum eða af gjafakortum, nema annað sé tekið fram. Ef svo kæmi upp að fleiri en eitt tilboð sé notað við sömu pöntun, getum við hætt við pöntun og endurgreitt kaupanda eða haft samband og fundið lausn.

Innihaldslýsingar, myndir og aðrar upplýsingar: Allar upplýsingar á síðunni eru birtar með fyrirvara um mögulegar prentvillur og myndbrengl. Við hvetjum viðskiptavini til að lesa um innihaldsefni á umbúðum áður en þær eru notaðar.

Trúnaður: Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin.

Persónuvernd

Við virðum persónuvernd viðskiptavina okkar og tryggjum að allar upplýsingar sem þú gefur upp í pöntunarferlinu séu meðhöndlaðar í samræmi við gildandi persónuverndarlög. Persónuupplýsingar sem þú veitir eru aðeins notaðar til að framkvæma og fullnægja pöntunum og afhendingu, bjóða upp á viðeigandi þjónustu og markaðssetningu, ásamt Því að uppfylla lagalegar skyldur. Við pöntun samþykkir kaupandinn að Þessar upplýsingar fari í viðskiptagrunn okkar (sjá fyrir neðan).

Við söfnum eftirfarandi upplýsingum:

·         Nafn

·         Tengiliðaupplýsingar (netfang, símanúmer, heimilisfang)

·         Pöntun og greiðsluupplýsingar

·         Vörur sem þú hefur skoðað eða pantað

·         Greina umferð um vefinn og vörur

Réttur til aðgengi og breytinga á persónuupplýsingum:

Þú átt rétt á að fá upplýsingar um hvaða persónuupplýsingar við geymum um þig, og þú getur farið fram á breytingar eða eyðingu þeirra ef þú vilt, nema ef lagalegar og bókhaldslegar ástæður koma í veg fyrir það. Ef þú vilt nýta réttinn þinn eða hefur einhverjar spurningar um hvernig við meðhöndlum persónuupplýsingar, hafðu þá samband við okkur í gegnum viðeigandi tengiliðaupplýsingar.

Við tökum persónuupplýsingunum þínum mjög alvarlega og notum áreiðanlega öryggisráðstafanir til að vernda þær gegn óheimilum aðgangi, breytingum eða birtingu. Allar greiðslur fara fram í gegnum örugga greiðslugátt Verifone sem uppfyllir allar viðurkennda staðla og kröfur.

Lögmæti: Þessir skilmálar eru háðir íslenskum lögum og skulu vera í samræmi við þau. Rísi dómsmál um ágreiningu milli aðila í tengslum við skilmálana skal það mál vera rekið fyrir héraðsdómi Reykjaness.

Annað:Með því að skrá þig á póstlista Viney samþykkir þú að fá sendar upplýsingar um nýjar vörur og tilboð. Netföngin eru trúnaðarupplýsingar og eru undir engum kringumstæðum afhent þriðja aðila. Óski viðskiptavinur eftir að vera tekinn af póstlista skal fylgja leiðbeiningunum neðst í emailinu eða senda email á Viney@viney.is.

Viney áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum hvenær sem er. www.viney.is