Fara beint í efni

🖤Frí sending ef verslað er fyrir 12.000kr🖤

🖤Frí sending ef verslað er fyrir 12.000kr🖤
  • Vörumerki
  • Húðumhirða
    • Hreinsir
    • Toner
    • Serum
    • Krem
    • Augnkrem
    • Maskar
    • Sólarvarnir
    • Kóreskar vörur
  • Förðun
    • Andlit
    • Augu
    • Varir
    • Hyljari
    • Púður
    • Augnskuggi
    • Sólarpúður & kinnalitur
    • Naglalakk
    • Gerviaugnhár
  • Hárvörur
    • Hárklemmur
  • Ilmir
  • Líkami
  • Karlmenn
  • Bóka förðun
  • Vani
Viney logo
  • Vörumerki
  • Húðumhirða
    • Hreinsir
      Toner
      Serum
      Krem
      Augnkrem
      Maskar
      Sólarvarnir
      Kóreskar vörur
  • Förðun
    • Andlit
      Augu
      Varir
      Hyljari
      Púður
      Augnskuggi
      Sólarpúður & kinnalitur
      Naglalakk
      Gerviaugnhár
  • Hárvörur
    • Hárklemmur
  • Ilmir
  • Líkami
  • Karlmenn
  • Bóka förðun
  • Vani
  • Aðgangur

    Karfan þín er tóm

    Ertu með aðgang? Skráðu þig inn til að ganga hraðar frá kaupum.

    Halda áfram að versla

    Vani

    Skilmálar Vana

    Gildir frá 24. ágúst 2026.

    Vani er frítt tryggðarkerfi hjá Viney. Þessir skilmálar segja hvað þú færð, hvað við gerum við upplýsingarnar þínar og hvað gerist ef þú vilt hætta. Við höfum reynt að skrifa þá á mannamáli frekar en lagamáli. Ef eitthvað er óskýrt máttu alltaf heyra í okkur.

    1. Hver rekur Vana

    Vani er rekinn af Viney ehf., Hafnargötu 35, 230 Reykjanesbæ, kennitala 440725-0900. Þú nærð í okkur á viney@viney.is eða í síma 618 4034.

    2. Hvað Vani er

    Þegar þú kaupir húðvöru hjá okkur bætist hún á þinn persónulega lista. Upp frá því færð þú 15% afslátt af þeirri sömu vöru, í hvert sinn sem þú kaupir hana aftur, í búðinni okkar og í netversluninni.

    Listinn stækkar með hverri nýrri vöru sem þú kaupir. Það er engin takmörkun á því hversu oft þú notar afsláttinn og enginn gildistími á honum eins og skilmálarnir standa í dag. Listinn rúmar allt að 100 vörur; nálgist hann þann fjölda höfum við samband við þig áður en lengra er haldið. Sjá einnig grein 9 um breytingar.

    3. Vani-pósturinn og samþykki þitt

    Aðild að Vana felur í sér að þú samþykkir að fá tölvupóst frá okkur um Vana. Þetta er ekki aukaatriði heldur forsenda kerfisins: pósturinn er eina leiðin sem við höfum til að koma kóðanum þínum og listanum þínum til þín.

    Það sem við sendum:

    • Kóðann þinn og staðfestingu á skráningu.
    • Áminningar þegar vara sem þú átt á listanum gæti verið að klárast.
    • Tilboð og fréttir sem eru ætluð meðlimum í Vana.

    Við sendum að jafnaði ekki oftar en nokkrum sinnum í mánuði, og við sendum ekki póst bara til að senda póst.

    Þú getur afskráð þig af póstinum hvenær sem er, með hlekknum neðst í hverjum pósti eða með því að senda okkur línu. Það á að vera jafn einfalt og að skrá sig, og kostar ekkert. Afskráning þýðir að aðild þinni að Vana lýkur og kóðinn þinn hættir að virka. Það er ekki refsing heldur einfaldlega það að án póstsins höfum við enga leið til að afhenda þér afsláttinn. Afskráning hefur engin önnur áhrif og hún breytir engu um lögmæti þess sem við gerðum áður en þú dróst samþykkið til baka.

    Þú getur skráð þig aftur hvenær sem er. Listinn þinn yfir keyptar vörur byggist þá upp á ný frá þeim tímapunkti.

    Aðild að Vana er frí og valfrjáls. Þú þarft ekki að vera í Vana til að versla hjá okkur. Það hefur engin áhrif á verð, þjónustu eða réttindi þín sem viðskiptavinur hvort þú ert meðlimur eða ekki, og viðskipti í búðinni og í netversluninni standa öllum til boða á sömu kjörum að öðru leyti.

    4. Hverjir mega vera með

    Aðild er frí og opin einstaklingum 18 ára og eldri. Hver einstaklingur má vera með eina aðild, tengda einu netfangi. Vani er ætlaður einstaklingum til eigin nota, ekki fyrirtækjum, endursölu eða heildsölu.

    Til að skrá þig þarftu að gefa upp fornafn og netfang og samþykkja þessa skilmála.

    5. Kóðinn þinn

    Þegar þú skráir þig færðu einn persónulegan afsláttarkóða. Hann er VANI- og fornafnið þitt. Kóðar þurfa að vera einstakir, svo ef sá kóði er þegar í notkun bætum við tölustaf aftan við. Viltu annan kóða máttu svara velkomandi póstinum og við breytum honum fyrir þig.

    Kóðinn er bundinn þér og virkar ekki fyrir aðra. Þú mátt ekki deila honum, selja hann eða birta hann opinberlega. Í búðinni þarf starfsfólk að tengja þig við söluna svo afslátturinn reiknist, og í netversluninni þarftu að slá kóðann inn eða nota hlekkinn sem við sendum þér.

    6. Hvaða vörur veita afslátt

    Afslátturinn gildir um vörur í flokknum Húðumhirða.

    Fæðubótarefni eru undanskilin. Að öðru leyti eru engin vörumerki undanskilin þegar þessi útgáfa skilmálanna tekur gildi. Við getum undanskilið einstök vörumerki eða vörur síðar, og þá gildir grein 9 um breytingar. Uppfærðar upplýsingar um hvað er undanskilið hverju sinni færðu hjá okkur í búðinni eða á viney@viney.is.

    Förðunarvörur, hárvörur, ilmir og gjafabréf veita ekki Vani-afslátt.

    7. Hvernig afslátturinn reiknast

    Nokkur atriði ráða því hvenær afslátturinn virkar:

    • Hvaða vara sem er í flokknum Húðumhirða kemst á listann, sama hvað þú borgaðir fyrir hana. Útsöluvörur og vörur keyptar með afslætti telja með.
    • Afslættir leggjast ekki saman. Vani-kóðinn gildir ekki ofan á útsöluverð, tilboð eða aðra afsláttarkóða. Sé varan þín þegar á tilboði borgar þú tilboðsverðið, ekki tilboðsverð mínus 15%.
    • Afslátturinn gildir um sömu vöru og þú keyptir, ekki um aðrar vörur frá sama vörumerki eða aðrar útfærslur af vörunni.
    • Afslátturinn nær ekki til sendingarkostnaðar.
    • Kaupin þurfa að vera skráð á þig, hvort sem er í búðinni eða á netinu, til að þau teljist með.

    8. Skil og endurgreiðslur

    Ef þú skilar vöru og færð hana endurgreidda dettur hún af listanum þínum, því þú hefur þá ekki lengur keypt hana. Þetta gerist sjálfkrafa.

    Almennir skilaskilmálar Viney gilda óbreyttir um allar vörur, hvort sem þær voru keyptar með Vani-afslætti eða ekki.

    9. Breytingar á Vana og lok aðildar

    Vani er þjónusta sem við bjóðum til viðbótar við venjuleg viðskipti, ekki áskrift sem þú greiðir fyrir. Við getum breytt skilmálunum, breytt því hvaða vörur veita afslátt, sett takmarkanir eða hætt með Vana. Slíkar breytingar gerum við eingöngu þegar við höfum til þess gilda ástæðu, til dæmis breytingar á innkaupsverði eða framboði, breytingar á lögum, breytingar á þeim kerfum sem halda utan um Vana, eða ef kostnaður við kerfið stendur ekki undir sér.

    Ef við gerum breytingu sem skerðir það sem þú hefur þegar áunnið þér, eða ef við hættum með Vana, látum við þig vita með tölvupósti með minnst 30 daga fyrirvara. À þeim 30 dögum gilda óbreyttir skilmálar um þær vörur sem þegar eru á listanum þínum, og þú mátt hætta í Vana strax ef þú sættir þig ekki við breytinguna. Minniháttar breytingar sem skerða ekki réttindi þín, til dæmis lagfæringar á orðalagi, tökum við gildi án fyrirvara.

    Þú mátt hætta í Vana hvenær sem er, með því að afskrá þig af póstinum eða senda okkur línu.

    10. Misnotkun

    Við áskiljum okkur rétt til að loka aðild og fella niður kóða ef Vani er misnotaður. Með því er átt við til dæmis að deila kóða með öðrum, stofna margar aðildir á sama einstakling, kaupa í endursöluskyni eða reyna að fá afslátt af vörum sem uppfylla ekki skilyrðin.

    Við gerum þetta ekki að tilefnislausu og við höfum samband við þig áður en við lokum aðild, nema um augljósa misnotkun sé að ræða.

    11. Persónuvernd og gögnin þín

    Til að reka Vana geymum við fornafnið þitt, netfangið þitt, kóðann þinn, samþykkið þitt og dagsetningu þess, og lista yfir þær vörur sem þú hefur keypt.

    Við notum þessar upplýsingar í tvennum tilgangi. Annars vegar til að reikna afsláttinn þinn og halda utan um listann þinn, sem er framkvæmd þeirrar þjónustu sem þú skráðir þig í. Hins vegar til að senda þér Vani-póstinn, sem byggist á samþykki þínu og sem þú getur dregið til baka hvenær sem er, sbr. grein 3.

    Við seljum ekki upplýsingar um þig. Þegar þú hættir í Vana fellur kóðinn þinn úr gildi og vörulistanum er eytt. Bókhaldsgögn um sjálf kaupin geymum við áfram eins og lög um bókhald krefjast.

    Að öðru leyti gildir persónuverndarstefna Viney um vinnsluna, þar á meðal hvaða þjónustuaðilar koma að henni, hversu lengi upplýsingar eru geymdar, hvort þær fara út fyrir Evrópska efnahagssvæðið og hvaða réttindi þú átt. Hana finnur þú á viney.is/policies/privacy-policy.

    Spurningar um gögnin þín, og beiðnir um aðgang, leiðréttingu eða eyðingu, fara á viney@viney.is.

    12. Hafðu samband

    Spurningar, athugasemdir og kvartanir fara á viney@viney.is eða í síma 618 4034, eða þú kemur bara við á Hafnargötu 35.

    13. Um þessa skilmála

    Um skilmálana gilda íslensk lög. Við skráum hvaða útgáfu skilmálanna þú samþykktir og hvenær, svo við getum alltaf sýnt þér hverju þú játtir.

    Útgáfa 1.0, gildir frá 24. ágúst 2026.

    Til baka í Vana

    Opnunartími verslunar

    Alla virka daga: 11-18

    Laugardagar: 12-16

    Skráðu þig á póstlistann fyrir sértilboð og fréttir

    Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum

    Facebook
    Instagram
    Tiktok
    Upplýsingar Upplýsingar
    • Algengar spurningar
    • Persónuverndarstefna
    • Skilaréttur
    • Sendingarskilmálar
    • Þjónustuskilmálar
    • Skilmálar Vana
    • Hafðu samband
    © 2026 Viney

    Leita

    Vörur

    • 2in1 Bond and Sealant - La Belle Beauty
      2in1 Bond and Sealant frá La Belle Beauty, vatnsheldur augnhárabondi sem heldur í 5+ daga

      2in1 Bond and Sealant - La Belle Beauty

      3.600 ISK
      Venjulegt verð  Útsöluverð  3.600 ISK
    • Advanced Night Cleansing Balm Cleanser with Lipid-Rich Oil Infusion - Estée Lauder
      Advanced Night Cleansing Balm frá Estée Lauder, olíubalmi sem fjarlægir farða og óhreinindi

      Advanced Night Cleansing Balm Cleanser with Lipid-Rich Oil Infusion - Estée Lauder

      9.950 ISK
      Venjulegt verð  Útsöluverð  9.950 ISK
    • Advanced Night Cleansing Gelée Cleanser with 15 Amino Acids - Estée Lauder
      Advanced Night Cleansing Gelée frá Estée Lauder, mildur hreinsir með amínósýrum

      Advanced Night Cleansing Gelée Cleanser with 15 Amino Acids - Estée Lauder

      8.500 ISK
      Venjulegt verð  Útsöluverð  8.500 ISK
    • Advanced Night Repair Eye Supercharged Gel-Creme Synchronized Multi-Recovery Eye Cream - Estée Lauder
      Advanced Night Repair augnkrem frá Estée Lauder gegn baugum og öldrunarmerkjum

      Advanced Night Repair Eye Supercharged Gel-Creme Synchronized Multi-Recovery Eye Cream - Estée Lauder

      14.500 ISK
      Venjulegt verð  Útsöluverð  14.500 ISK