Refund policy
Vöruskil: Skilafrestur á netinu er 14 dagar frá móttöku vörunnar (netkaup – skv. lögum nr. 16/2016). Ekki er hægt að skipta eða skila vöru án kvittunar eða skiptimiða (ef endurgreiðsla á við er kvittun nauðsynleg).
Ef vöruskil eiga sér stað er nauðsynlegt að varan sé í upprunalegu standi, og ef varan er með innsigli, er ekki leyfilegt að skila ef búið er að rjúfa innsiglið. Einnig má ekki vera búið að opna, nota eða skemma vöruna. Ekki er hægt að skila vörum eins og varalitum, glossum, möskurum, naglavörum og eyrnalokkum (sem er ekki innsiglað eða hægt að sanna að hafi ekki verið opnaðar) vegna hreinlætisreglna.
Einnig er ekki hægt að skila eða skipta útsöluvörum, tilboðs gjafasettum og gjafakortum.
Vöruskil fara fram í verslun okkar á Hafnargötu 35, 230 Reykjanesbæ. Ef varan var pöntuð með sendingu þá er hægt að skila með því að senda vöruna til baka á:
Viney ehf.
Lyngholt 18,
230 Reykjanesbær
Við endurgreiðum kaupverðið innan 14 daga frá móttöku skilavöru. Kaupandi ber ábyrgð á öllum sendingarkostnaði, ef skil eða skipti eiga sér stað. Ef þú óskar eftir skilum á vöru hafðu samband við okkur til að fá nánari upplýsingar um ferlið.
Gallaðar vörur og ábyrgð: Ef þú hefur fengið ranga vöru eða vöru með galla, hafðu samband og við munum aðstoða þig eins fljótt og hægt er. Við leysum málið samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003; sem er ný vara, viðgerð eða endurgreiðsla eftir því sem best á við að hverju sinni.