Skin Enhancer Multi-Stick - Bobbi Brown
Fjölnota stifti fyrir andlit, kinnar og varir sem er blanda af húðvöru og farða. Frískar upp á húðina með fallegum lit og ljóma, ásamt raka sem endist í allt að 24 klukkustundir. Multi-Stick má nota sem kinnalit, bronzer eða highlighter - eftir því hvaða lit þú velur. Litirnir eru léttir og uppbyggjanlegir með ljóma sem endist allan daginn. Gerir húðina fyllri í ásýnd með rakagefandi Plump Glow Complex, blöndu af hýalúrónsýru-fylltum kúlum og ljósspeglandi örfínum perlupigmentum, ásamt olíum sem næra og mýkja húðina. Létt áferð sem rennur mjúklega á húðina og er hvorki fitukennd né þung.
Skref 1: Berðu beint á andlit, kinnar eða varir.
Skref 2: Dreifðu úr með fingrum eða bursta.
Má nota eitt og sér eða ofan á farða (hannað til að hreyfa ekki við farðanum undir). Blandaðu saman mismunandi litum fyrir ferskan blæ eða sólkysstan ljóma.
Þér gæti líkað við