Bursti nr. 07 The Oval Crease Brush - By Harpa Kára
Lýsing
„Lykillinn á bakvið góða förðun eru góð verkfæri“
Bursti nr. 07: The Oval Crease Brush
Mjúkur og fíngerður skyggingarbursti með mjóum og ávölum burstahaus sem gefur góða stjórn við ásetningu og blöndun á augnsvæðið. Burstinn er minni en hefðbundinn blöndunarbursti og hentar afar vel fyrir minni augnsvæði.
Um Hörpu Kára
Harpa Káradóttir förðunarfræðingur og eigandi Makeup Studio hefur síðustu tvo áratugi átt farsælan og fjölbreyttan starfsferil í förðunargeiranum. Í gegnum árin hefur hún sérhæft sig í förðunarkennslu og tileinkað sér faglega og skapandi nálgun þar sem áhersla er lögð á nákvæmni og persónulega þjónustu. Af mikilli ástríðu hefur hún byggt upp traustan feril á sviði förðunar og fegurðar með fagmennsku að leiðarljósi.
Umsagnir
Þér gæti líkað við