Yuza Sorbet Eye - Erborian
YUZA SORBET EYE hressir og vekur upp augnsvæðið um leið og það nærir viðkvæmu húðina í kringum augun. Þetta gelkennda serum inniheldur öreindir af e-vítamíni sem búnar eru til úr náttúrulegum sellúlósa sem er einstaklega ríkur af andoxunarefnum. YUZA SORBET EYE dregst samstundis inn í húðina og verndar hana gegn umhverfisáreiti og þurrki í kringum augun. Húðin verður mjúk, dökkir baugar minnka og augun virðast úthvíld og fersk. [Berðu á augnsvæðið á hverjum morgni og sjáðu hvernig augnsvæðið lifnar aftur við.] Prófað undir eftirliti augnlækna.
Virk innihaldsefni:
Yuzu ávaxtaseyði (e. Yuzu fruit extract) : Rakagefandi og býr yfir andoxunarefnum. Inniheldur ceramid C24 sem er þekkt fyrir að styrkja rakastig húðarinnar.
Lakkrísrótarseyði (e. Licorice root extract): Birtir og býr yfir andoxunarefnum.
E-vítamín : Býr yfir andoxunarefnum
Arginine : Inniheldur amínósýrur sem hjálpa til við að viðhalda náttúrulegu rakastigi húðarinnar og er þekkt fyrir rakagefandi eiginleika þess.
Þér gæti líkað við